Gildi eða slæm hegðun

Gildi segja til um hver þú ert og hvað þú vilt standa fyrir oft er fólk ekki meðvitað um gildi sín og stundum veit fólk ekki hvaða gildi það vill tileinka sér. Já maður getur tileinkað sér góð gildi eða slæma hegðun.

Hlutverk:

Með því að skoða sig út frá þeim hlutverkum sem þú gegnir í lífinu er gott að skoða hvaða gildi vill ég hafa að leiðarljósi?

Til dæmis hlutverkið móðir.

Hvaða gildi hefur þú að leiðarljósi í uppeldi barna þinna?

Eru það gildi sem þú vilt innræta hjá þeim með þá von í brjósti að þeim vegni vel í lífinu eða þau verði kærleiksrík eða fylgin sér og þori að fara sína leið í lífinu.

En sem yfirmaður hvaða gildi hefur þú í því hlutverki?

Hvað skiptir þig máli sem stjórnandi og hvað viltu innleiða í þinn hóp?

Sem vinur eða vinkona eða maki eða kona eða maður eða….

 

Ávinningur:

Gildi hafa margsvíslegan ávinning fyrir mann sjálfan og umhverfið. Þegar maður virkilega fer að skoða gidi út frá því hvað er það sem ég vill standa fyrir og hverju vill ég að það skili til þeirra sem eru í nærumhverfi mínu.

Lifi ég raunverulega eftir þeim gildum sem mér finnast eftirsóknaverð eða er ég að setja upp falska sjálfsvirðingu með flottum frösum og því að setja mig á stall.

Öll góð gildi hafa andstæðu sem telst þá til slæmrar hegðunnar og til þess að tileinka sér gildi þarf að skoða andstæðuna af fullum heiðarleika.

 

Sjálfsskoðun:

Að skoða sjálfan sig raunverulega krefst hugrekkis. Maður getur fundið hjá sér eitthvað sem maður vill ekki játa. Með því að fara inn á við og skoða sig í fullum heiðarleika, velja sér þau gildi sem þú kýst að tileinka þér og lifa eftir. Færðu tækifæri til þess að móta þá manneskju sem þú vilt verða.

Fyrsta skrefið í átt að stóra markmiðinu sönn sjálfsvirðing er að horfast í augu við sig s.s plúsa og mínusa, nýta plúsana til að byggja upp mínusana eða taka þá út og þar kemur gildisvinna mjög sterk inn.

 

Dæmi:

Ég valdi fyrir mörgum árum að heiðarleiki væri eitt af mínum gildum. Það var sárt og erfitt að horfast í augu við það að ég sem taldi mig MJÖG heiðalega var í raun frekar óheiðarleg. Fullt af svona litlum hvítum lygum sem ég leit ekki á sem óheiðarleika

´´ hvít lygi er hún ekki ok´´

Hlutir eins og að tala um aðra að þeim fjarstöddum, láta sem ég hefði þekkingu á allt og öllu til að fela þekkingarleysið, keyra of hratt, segja að hlutir kostuðu minna en þeir gerðu svo ég fengi aðdáun annara á því hvað ég var sniðug að versla.

Allskonar svona sem mér fannst ekkert stórmál, það vissi hvort eð er engin af þessu!

Eða hvað jú ég vissi af þessu og þeir sem ég talaði við um aðra og þeir sem keyptu nákvæmlega sama hlutin á sama stað á allt öðru verði….

Til þess að geta gert heiðarleika að einum af mínum grunngildum varð ég fyrst að horfast í augu við eigin óheiðarleika, gera hreint fyrir mínum dyrum og hefja svo heiðarlegan lífstíl, ALLTAF líka þegar það var erfitt að vera heiðarleg.

Þessi ganga var alls ekki sú auðveldasta og ég hef alveg dottið í gryfjurnar en ég gengst við því þegar ég misstíg mig og legg mig fram við að vera heiðarleg á öllum sviðum, ekki bara þegar aðrir sjá 😉

 

Sönn sjálfsvirðing:

Gildi verða að vera heil og sönn til þess að geta kallast gildi og trúið mér sjálfsmyndin stækkar margfalt við að takast á við sjálfan sig og vinna að því að verða sú sem þú vilt vera SANNARLEGA.