Markþjálfun

Taktu flugið og hámarkaðu árangurinn þinn!

Markþjálfun er fyrir fólk sem vill ná auknum árangri og auka skilvirkni. Markþjálfun er aðferðafræði sem er til þess fallin að hjálpa einstaklingum að öðlast skýrari framtíðarsýn og hvernig hægt er að nýta styrkleika sína til að ná þeim árangri sem óskað er eftir.

Markþjálfun er samvinna markþjálfa og markþega að því að finna innri neista og ástríðu markþegans, má segja að markþjálfi sé einkaþjálfi í lífsleikni og árangri.  Markþjálfun á rætur sínar að rekja til ýmissa fræðigreinar, m.a. leiðtogafræði, sálfræði, félagsfræði, taugavísindi og kennslufræði.

Markþjálfi er ekki ráðgjafi heldur leggur áherslu á að markþegi finni sjálfur lausnina  á hverju máli sem tekið er fyrir. Markþjálfinn heldur hinsvegar utan um ferlið og nær með beinum tjáskiptum og kraftmiklum spurningum að beina markþeganum að kjarna málsins.

Markþjálfun er eins og púsluspil þar sem megintilgangurinn er að leggja nokkur púsl á hverjum fundi þar til heildarmyndin er skýr. Sú mynd er í flestum tilvikum ný, fersk og kraftmikil, þar sem búið er að breyta draumum og væntingum markþegans  í skýr markmið með tilheyrandi leiðum og framkvæmdum að því sem stefnt er á.

Ástæðan fyrir að markþjálfun hefur fest sig í sessi á undanförnum árum er einfaldlega að hún skilar árangri. Þeir sem notið hafa góðrar markþjálfunar, hvort sem er í störfum sínum eða einkalífi segja hana framúrskarandi tæki til að ná markmiðum og breyta hegðun eða einfaldlega að hugsa lífið upp á nýtt.

Kristín Snorradóttir ACC vottaður markþjálfi með PCC færni 

 

Tímabókanir