Fallegasta umsögnin er frá ófæddum dreng

Fékk leyfi til að segja frá þessu:

Hjá mér hefur verið ófrísk kona í dáleiðslumeðferð og er nú í jóga nidra æfingabúðum.

Kona þessi er komin 31 viku á leið og var í 3D sónar, Barnið snéri höfðinu að fylgjunni og hefur gert þegar sónar hefur verið.
Svo ljósmóðirinn stakk upp á að foreldrarnir spiluðu tónlist, því þá væri algengt að börn í móðurkviði snéru sér við… nei ekkert gerðist!

Móðirin ákvað að kveikja á dáleiðslufæl sem hún nýtir heima milli tíma og barni tók strax við sér snéri andlitinu í átt að alheiminum og móðirinn gat ekki betur séð en að það brosti 🙂

Pabbi kveikti svo á Star Wars laginu og barnið snéri höfðinu strax að fylgjunni!

Ég fékk að sjá myndirnar af þessu litla kraftaverki og gæsahúð af gleði yfir viðbrögðum barnsins við dáleiðslu og jóga nidra!

Ég get svo svarið það ég sá brosið líka!

Það ber líka að geta þess að barnið elskar að mæta í dáleiðslu og jóga nidra það finnur móðirinn á hreyfingum í tímunum.

Þetta barn kemur pollrólegt í heiminn