Iðkun þakklætis, verkfæri til vellíðunar

Það verður að segjast eins og er að þetta ár 2020 hefur verið alveg eð ólíkindum.
Heill hellingur af áskorunum og erfiðum verkefnum. Það hefur einkennst af Covid veirunni og baráttu við veiruna sem og sett samfélagið og heimin allan á hvolf, fólk missir vinnu og aukið streitustig og allskonar álag sem reynir á allar manneskjur sama á hvaða aldri við erum.

Ég mæli með þekklætisiðkun:

Ég get sannarlega mælt með því að stunda þakklæti sér til hjálpar á erfiðum tímum, hljómar undarlega en það er einu sinni bara þannig að þakklæti er magnað verkfæri og þegar við lærum að beita þessu verkfæri þá verður tilveran svo miklu auðveldari og við förum að sjá tækifæri sem voru okkur ekki sýnileg áður.
Ef ég vitna í jógafræðin þá segir þar ” það sem þú veitir athygli vex og dafnar”
í erfiðleikunum felast tækifæri en til að sjá umfram erfiðleika þá þarf maður að taka stjórnina á hausnum, sem lætur oft ansi ófriðlega og þar er Þakklæti frábært verkfæri sem við getum öll nýtt og er alveg ókeypis!

Hvernig stundar maður svo þetta þakklæti?
Það má gera á ýmsa vegu og stundum þarf maður bara að þykjast vera þakklátur til þess að komast þangað.
En öll höfum við alltaf eitthvað til að vera þakklát fyrir, eins og t.d að hafa sjón eða heyrn, fætur sem bera okkur, eiga mat á disknum okkar, kalda vatnið í krananum, fólkið okkar, tannburstann, bros frá náunganum.
Sama hvað lífið er töff er alltaf eitthvað sem er þakkarvert og með því að sækja þessa þakkaverðu hluti og hugsa um að þarna sé ljós punktur þá finnur maður fleiri ljósa punkta og þar með fleiri þakkarefni. (töfrabrögð sem allir geta stundað)

Hverju breytir þetta þakklæti?
Með þessu breytir maður líðan sinni og fer að finna þessa góðu þækklætistilfinningu sem er ótrúlega notaleg í kroppnum.
Ein leið sem ég hef nýtt sjálf og oftar enn ekki bent fólki á sem ég hef stutt við er að halda þakklætisdagbók.
Fá sér fallega bók og gefa sér stund á hverjum degi, mér finnst persónulega best að gera þetta á kvöldin og skrifa niður minnst þrjú atriði sem þú er þakklát/ur fyrir, þetta er ekki erfitt verkefni.
Það sem gerist er að þessi þrjú atriði opna fyrir þakklætisaugun og viðkomandi sér fleira og fleira sem er þakkarvert og að endingu sjáum við þakklæti í erfiðleikunum, því jú erfiðleikar skila okkur alltaf einhverjum þroska.

Margföldunaráhrifin eru mögnuð:
Njótum þess að finna til þakklætis og á þann hátt gera heimin jákvæðari. í hvert sinn sem þú finnur meira þakkarefni, finnur þú betri líðan og það er bara þannig að góð líðan gefur frá sér góða orku og betri samskipti.

Í dag er ég þakklát fyrir svo margt en til þess að nefna eitthvað þá er ég þakklát fyrir fjölskylduna mína, vini mína, góðan kaffibolla í morgun og já íslenska rigningarloftið hér í höfuðstaðnum ( það kennir mér að elska sólina heitar þegar hún kemur).
Þakklæti til ykkar mínu kæru lesendur ***